17,8 milljónir atvinnulausar-Jafngildir samanlögðum íbúafjölda Austurríkis og Portúgals
Atvinnuleysi á evrusvæðinu hefur aldrei verið meira en nú í júlímánuði. Það fór í 11,2% eða 17,8 milljónir manna, sem jafngildir mannfjölda tveggja aðildarríkja, Austurríkis og Portúgals að sögn Financial Times. Atvinnuleysi ungs fólks á evrusvæðinu fór í 22,4%.
FT segir þessar tölur endurspegla versnandi efnahagsástand í flestum evruríkjum. Sérfræðingar spá því að atvinnuleysið eigi eftir að aukast enn. Verst er ástandið á Spáni og Grikklandi. Atvinnulausum fjölgar einnig í Frakklandi og á Ítalíu. Hins vegar fækkaði atvinnulausum heldur í Þýzkalandi og fjöldi þeirra stóð í stað í Hollandi.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Ítalía: Um 38% ungmenna án atvinnu
Um 38% ungmenna á Ítalíu á aldrinum 15-24 ára eru atvinnulaus skv. yfirliti, sem birt er á fréttavef BBC í tilefni af mótmælum um 100 þúsund Rómarbúa vegna heimsóknar Angelu Merkel til Ítalíu í gær. Atvinnuleysi er langmest í þessum aldursflokki á Grikklandi og Spáni, eins og áður hefur komið fram en Ítalía er í þriðja sæti.
Ný könnun: 46% Breta vilja yfirgefa Evrópusambandið
Samkvæmt nýri skoðanakönnun, sem gerð var fyrir Sunday Telegraph í London vilja 46% Breta yfirgefa Evrópusambandið.
Merkel á löngum einkafundi með Frans páfa
Angela Merkel Þýskalandskanslari ræddi í 45 mínútur við Frans páfa á einkafundi laugardaginn 18. maí,. Fréttastofan Deutsche Welle segir að óvenjulegt sé að einkafundir með páfa séu svo langir. Merkel er leiðtogi kristilegra demókrata í Þýskalandi þar sem kaþólskir kjósendur skipta miklu. Merkel er ...
Ítalir efna til fjöldamótmæla í Róm - Merkel líkt við nasistaforingja
Um 100.000 manns mótmæltu í Róm laugardaginn 18. maí. Forystumenn verkalýðssamtaka stjórnuðu aðgerðunum undir rauðum fánum og markmið þeirra var að knýja fram stefnubreytingu hjá nýrri ríkisstjórn landsins undir forsæti Enricos Letta sem kemur úr röðum vinstri manna. Þá einkenndust mótmælin einnig a...