Laugardagurinn 25. maí 2013

Monti biðlar til Finna í Helsinki fyrir örlagafund í stjórn Seðlabanka Evrópu


1. ágúst 2012 klukkan 20:53

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu, hitti Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands, í Helsinki miðvikudaginn 1. ágúst og einnig Finnann Olli Rehn, efnahagsstjóra ESB. Finnar vilja setja strangar kröfur vegna lánveitinga til skuldugra evru-þjóða og hafa krafist sérstakra trygginga fyrir sig af Finnum og Spánverjum.

Mario Monti og Jyrki Katainen á blaðamannafundi í Helsinki 1. ágúst 2012.

Monti segir að Ítalir þurfi ekki á neyðraðstoð að halda en hann geti ekki útilokað neitt í því efni. Vill hann afla stuðnings Finna við sameiginlegar aðgerðir í þágu Ítalíu ef til þeirra þyrfti að koma. Að loknum fundinum með Karainen forsætisráðherra bar Monti mikið lof á hann, sagði hann „einstaklega áhugaverðan viðmælanda“ og hann lýsti sjálfum sér sem „aðdáanda Finnlands“.

Monti dró ekkert undan þegar hann ræddi alvarleika kreppunnar frá vorinu 2010, Ítalir kynnu að þurfa neyðaraðstoð ef ekki tækist að ná tökum á ástandinu á Spáni. „Ekki er unnt að neita því að markaðarnir eru að verulegu leyti óstarfhæfir,“ sagði Monti.

Finnski forsætisráðherrann vék sérstaklega að spurningunni um það hvort réttmætt væri að nota björgunarsjóði evrunnar til að kaupa bréf á markaði til að lækka lántökukostnað ríkja í vanda. Hann sagði að með því yrði framtíð bráðabirgða-björgunarsjóðsins, EFSF, og varanlega sjóðsins, ESM, stefnt í voða.

Katainen sagði að vissulega vildu öll evru-ríkin vernda sameiginlegu myntina hitt væri staðreynd að „ríki og þjóðir [treystu] ekki hver öðrum eins mikið og áður“.

Mario Monti fer til Parísar 2. ágúst til fundar við François Hollande Frakklandsforseta og frá París heldur Monti til Madrid á fund Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar.

Barack Obama Bandaríkjaforseti og Hollande lýstu stuðningi við hagvöxt í Evrópu og stöðugleika á evru-svæðinu miðvikudaginn 1. ágúst. Frá frönsku forsetaskrifstofunni barst tilkynning um þetta efni þar sem einnig kom fram að bæta yrði efnahagsástand á evrsvæðinu til að ýta undir hagvöxt almennt í heiminum.

Bankastjórn Seðlabanka Evrópu kemur saman fimmtudaginn 2. ágúst og vænta þess margir að þar verði teknar ákvarðanir sem muni skipta miklu í baráttunni við evru-skuldakreppuna. Sama dag og bankastjórnin hittist er liðin vika frá því að Mario Draghi, forseti stjórnar seðlabankans tók óvenjulega skýrt af skarið um að allt yrði gert til að bjarga evrunni.

AFP-fréttastofan segir að sérfræðingar telji þrjár leiðir færar fyrir Seðlabanka Evrópu: lækkun vaxta; kaup skuldabréfa af ríkjum í vanda eða að bjóða björgunarsjóðum evrunnar ótakmarkað lánsfé.

Ekki er talið líklegt að vextir verði lækkaðir, þeir voru færðir niður í sögulegt lágmark, 0.75% í síðasta mánuði.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Ítalía: Beppe Grillo ætlar að knýja fram þjóðar­atkvæða­greiðslu um ESB og evruna

Beppe Grillo, leiðtogi 5-stjörnu-hreyfingarinnar á Ítalíu, sigurvegara kosninganna í febrúar 2013 ætlar að beita sér fyrir söfnun 500.000 undirskrifta til að knýja fram þjóðar­atkvæða­greiðslu á Ítalíu um ESB og evruna. Grillo sem er í stjórnar­andstöðu á ítalska þinginu ætlar að þvinga fram þjóðaratk...

Dansmærin Ruby breytir framburði sínum í máli sem tengist Berlusconi

Ruby, unga stúlkan frá Marokkó, sem er höfuðpersónan í málaferlum gegn Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætis­ráðherra Ítalíu, og félögum hans fyrir að hafa greitt fyrir kynlíf með henni sagði fyrir rétti í Mílanó föstudaginn 24. maí að hún hefði búið til sögur um svæsnar kvöldskemmtanir með „Cavali...

Kýpur sakar þríeykið um rangfærslur í skýrslu um peningaþvætti

Kýpversk stjórnvöld saka þríeykið, ESB/AGS/SE um að rangfæra upplýsngar um peingaþvætti í bönkum á Kýpur í nýrri skýrslu, sem sagt hefur verið frá hér á Evrópu­vaktinni. Þau segja að ályktanir, sem séu dregnar í skýrslunni séu tilefnislausar.

Barack Obama boðar nýja stefnu í baráttunni við hryðjuverkamenn - vill takmarka notkun dróna og þrengja vald CIA

Barack Obama Bandaríkja­forseti kynnti nýja stefnu í stríðinu gegn hryðjuverkum í ræðu sem hann flutti í National Defense University í Washington fimmtudaginm 23. maí. Þetta stríð gæti ekki staðið „að eilífu“, því yrði að ljúka en baráttan gegn hryðjuverkamönnum að halda áfram. Stefnan hefur verið...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS