Sunnudagurinn 7. mars 2021

Forseti gríska þingsins í einn dag - skipaði dóttur sína í embætti


9. ágúst 2012 klukkan 18:16

Vyron Polydoras, þingmaður Nýja lýðræðisflokksins, var forseti gríska þingsins í einn dag á milli kosninganna 6. maí til 17. júní 2012. Hann réð þá dóttur sína í fast starf hjá þinginu. Nú er krafist afsagnar hans.

Polydoras segist ekki hafa gert neitt rangt, lögum samkvæmt hafi hann mátt skipa sex starfsmenn. Hann hafi aðeins skipað einn.

Vyron Polydoras

Á fésbók hefur verið opnuð síðan „Afsögn Polydorasar strax“. Höfðu 2.200 manns lýst stuðningi við markmið hennar fimmtudaginn 9. ágúst að sögn Reuters-fréttastofunnar.

Þingmaðurinn sagði við dagblaðið Eleftheros Typos: „Ég skipaði aðeins einn embættismann í stað sex og valdi dóttur mína sem er náinn, verðmætur samstarfsmaður. Hún er með þrjár meistaragráður, talar fjögur tungumál og ég spyr sjálfan mig að því hvers vegna málið er tekið til umræðu núna.“

Hann bendir einnig á dóttir hans hafi starfað í skrifstofu hans þegar hann var ráðherra almannafriðar og einnig þegar hann var varaforseti þingsins.

Ilias Kanellis, dálkahöfundur Ta Nea, segir í blaðinu: „Vyron Polydoras sat sem forseti þingsins í einn dag. Hefði hann setið einum degi lengur, hefði hann þá einnig skipað hina dóttur sína?“

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS