Laugardagurinn 27. febrúar 2021

Michael Fuchs: Þýzkaland beitir neitunarvaldi gegn frekari greiðslum standi Grikkir ekki við skilmála


13. ágúst 2012 klukkan 09:09
Jürgen Matern
Þýska þinghúsið Reichstag í Berlín

Þýzkaland mun beita neitunarvaldi gegn frekari aðstoð við Grikki standi þeir ekki við umsamda lánaskilmála , segir Michael Fuchs, varaformaður þingflokks Kristlegra demókrata í viðtali við Handelsblatt í dag. Fuchs segir að jafnvel þótt önnur evruríki yrðu tilbúin til að samþykkja frekari greiðslur til Grikklands mundu Þjóðverjar hafna því verði þeir ekki sáttir við skýrslu þríeykisins um stöðu mála í Grikklandi.

Þá segir Fuchs, að það sé ekki hægt að þvinga ríki út af evrusvæðinu en hann geri ráð fyrir því að gríska rikisstjórnin viti hvað að henni snúi geti hún ekki uppfyllt skilmálana. Þýzkaland sé komið að mörkum þess, sem það sé tilbúið að leggja fram. Fuchs lýsir líka andstöðu við hugmyndir um frekari lánveitingar Seðlabanka Evrópu til Grikklands.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS