Brezka ríkisstjórnin á í vandræðum með rekstur ríkissjóðs. Skuldirnar aukast en minnka ekki eins og að var stefnt og búizt var við. Þetta kemur fram í fréttum The Scotsman, sem segir að fjárlagastefna George Osborne sé í rúst. Nýjar tölur sýna auknar lántökur upp á 600 milljónir punda í júlí til þess að brúa bilið á milli tekna og gjalda. Sérfræðingar höfðu spáð 2,5 milljarða punda afgangi í júlí. Í júlí á síðasta ári var afgangurinn 2,8 milljarðar punda.
Þessar nýju tölur benda til þess að lántökur brezka ríkisins kunni að aukast um 30 milljarða punda frá síðasta ári. Osborne hefur stefnt að því að draga úr fjárlagahalla með miklum aðhaldsaðgerðum.
Inn í þessar umræður í Skotlandi blandast deilur um sjálfstæði Skotlands. Blaðið hefur eftir einum af talsmönnum skozkra þjóðernissinna að Skotar hafi borgað 9,6% af sköttum Stóra Bretlands en fengið í sinn hlut 9,3% af útgjöldum.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.