Laugardagurinn 16. janúar 2021

Antonis Samaras kominn til Berlínar með óskir sínar um tveggja ára „andrými“


24. ágúst 2012 klukkan 11:40
Antonis Samaras og Angela Merkel í Berlín 24. ágúst 2012.

Antonis Samaras, forsætisráðherra Grikkja, er kominn til Berlínar þar sem hann mun föstudaginn 24. ágúst ræða við Angelu Merkel Þýskalandskanslara og óska eftir tveggja ára „andrými“ fyrir Grikki gagnvart neyðarlánveitendum þeirra á evru-svæðinu, Seðlabanka Evrópu (SE) og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Merkel og François Hollande Frakklandsforseti sem Samaras hittir laugardaginn 25. ágúst í París hafa sagt að Grikkir verði að standa við eigin loforð.

Merkel og Hollande hittust í Berlín að kvöldi fimmtudags 23. ágúst og staðfestu þar samstöðu sína varðandi Grikkland. Hið klassíska svar ráðamanna í Berlín og París við öllum spurningum varðandi Grikkland er að menn verði að bíða skýrslu þríeykisins, fulltrúa ESB, SE og AGS um framvindu efnahagsmála í Grikklandi áður en afstaða er tekin til þeirra.

Í mínum huga er mikilvægt að við stöndum öll við skuldbindingar okkar og að við bíðum sérstaklega eftir skýrslu þríeykisins og sjáum niðurstöðu hennar,„ sagði Merkel. Fulltrúar þríeykisins fara næst til Aþenu í september.

Antonis Samaras vill „andrými“, lengri tíma til að fullnægja skilyrðum lánardrottnanna. Blása þurfi lífi í efnahagsstarfsemina til að auka tekjur ríkisins.

„Ég hvet Grikki til að halda áfram á umbótabrautinni sem krefst mikilla fórna af þeim,“ sagði Merkel. Hollande sagðist vona að Grikkir yrðu áfram með evru en bætti við að „auðvitað verða Grikkir að gera sitt til að svo verði“.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS