Þjóðverjar eru jákvæðari í garð Íra en Grikkja og Portúgala og mikill meirihluti Íra telur að Þjóðverjar hafi gert nóg til að verja evrusvæðið. Þetta kemur fram í könnun, sem Irish Times lét gera í báðum löndum. Einungis 3% þeirra sem spurðir voru í Þýzkalandi vill Írland út af evrusvæðinu og meirihluti þeirra telur að Írar vinni meira en Þjóðverjar.
Um 52% Þjóðverja telja, að Þýzkaland geri of mikið til að halda evrusvæðinu saman, 36% telja að þeir geri nóg en 6% að ekki sé nóg að gert.
Um 46% Þjóðverja telja, að Írar leggi hart að sér að endurreisa efnahag sinn en 23% telja að Írar geti gert meir. Hins vegar telja einungis 13% Þjóðverja að Grikkir leggi nógu hart að sér og 78% að Grikkir verði að gera meira. Varðandi Portúgal telja 45% að þeir geti lagt meira að sér.
Þegar spurt var í Þýzkalandi hvort eitthvert evruríkjanna ætti að hverfa af evrusvæðinu sögðu 3% Írar, 5% Portúgalar en 42% Grikkland. En samtals 49% þátttakenda sögðu að ekkert ríkjanna ætti að fara.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.