Mánudagurinn 1. mars 2021

Hollande vill Grikki áfram með evru- leynihópur innan þýska fjármála­ráðuneytisins hugar að framtíð evrunnar


25. ágúst 2012 klukkan 12:39

François Hollande Frakklandsforseti og Antonis Samaras, forsætisráðherra Grikklands, hittust í París laugardaginn 25. ágúst. Eftir fundinn sagði Hollande að Grikkir „yrðu að halda áfram á evru-svæðinu“ en jafnframt bæri þeim að „sýna trúverðugleika“ þegar kæmi að skuldbindingum um að draga úr ríkisútgjöldum.

Antonis Samaras og François Hollande í París 25. ágúst 2012.

Hollande tók fram að við niðurskurðinn bæri grísku stjórninni að huga að þanþoli þjóðarinnar. Samaras sagði að stjórn sín mundi ráða við vandann og Grikkir yrðu áfram með evru.

Angela Merkel Þýskalandskanslari sagði eftir fund með Samaras í Berlín föstudaginn 24. ágúst hið sama og Hollande að Grikkir yrðu áfram aðilar að evru-samstarfinu. Þessi ummæli hafa verið túlkuð sem stuðningsvottur við Samaras og ríkisstjórn hans.

Financial Times Deutschland segir að leynilegur hópur hafi verið stofnaður innan þýska fjármálaráðuneytisins til að kanna hugsanlegar afleiðingar þess að Grikkir segi skilið við evru-svæðið.

Meginboðskapur Antonis Samaras er að Grikkir þurfi aukið „andrými“ allt að tveimur árum til að blása lífi í efnahagsstarfsemi sína og auka tekjur ríkissjóðs. Volker Kauder, þingflokksformaður CDU, flokks Merkel, sagði í samtali við ZDF-sjónvarpið: „Orðtakið “tími eru peningar„ hefur aldrei skipt eins miklu og í þessu máli og við getum ekki útvegað meiri peninga.“

Samaras svarar ummælum af þessu tagi á þann veg að Grikkir séu stoltir og vilji ekki lifa á lánsfé, þeir vilji standa á eigin fótum.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS