José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB hvetur nú til grundvallarbreytinga á sáttmálum Evrópusambandsins, sem hann segir geta ráðið úrslitum um framtíð þess. Þetta kom fram í ræðu, sem Barroso flutti á ráðstefnu lagadeildar Yale-háskóla í Haag. Hann segir grundvallarþætti í sáttmálum ESB krefjast endurskoðunar sem leiði til meiri sameiningar en samhliða verði að auka lýðræði í starfsemi ESB.
Þetta kemur fram í Wall Street Journal, sem segir að hingað til hafi háttsettir embættismenn í Brussel verið tregir til að hefja umræður um meiriháttar breytingar á sáttmálum. Slíkar breytingar taki mörg ár og dragi athygli frá aðkallandi verkefnum í efnahagsmálum aðildarríkjanna. Í ræðu sinni í Haag sagði Barroso ljóst, að ekki væri hægt að halda samstarfinu innan evrusvæðisins áfram nema með slíkum breytingum.
Blaðið segir að fréttir hafi borizt af því síðustu daga að Þjóðverjar hvetji nú til ráðstefnu tll þess að ræða breytingar á sáttmálum.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.