Kemur ekki til greina að skerða kjör aldraðra
Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, sagði í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi, að hann mundi ekki taka við neyðaraðstoð við Spán, sem mundi þvinga hann til frekari niðurskurðar eða skattahækkana. Hann útilokaði einnig að umsókn um slíka aðstoð mundi berast fljótlega. Hann bætti því við að hann væri sannfærður um að Spáni yrði sýnd sanngirni. Hann sagðist mundi skoða skilmálana en hann mundi ekki samþykkja skilmála sem segðu honum hvar hann ætti að skera niður. Hann nefndi sérstaklega að ekki kæmi til greina að skerða kjör hinna öldruðu.
Hinn 21. október n.k. fara fram svæðisbundnar kosningar á Spáni og fram kom hjá Rajoy að engin umsókn yrði send fyrir þann tíma.
Frá þessu segir í Guardian, sem segir að El País, spænska dagblaðið, hafi gagnrýnt frammistöðu Rajoy, sem blaðið segir hafa verið óöruggan, svartsýnan og hafi ekki haft á reiðum höndum skýr svör við ákveðnum lykilspurningum.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.