Föstudagurinn 6. desember 2019

Pólverjar hafna þátttöku í banka­sambandi ESB


17. september 2012 klukkan 18:44
Jacek Rostowski

Pólverjar hafna tillögu framkvæmdastjórnar ESB um bankasamband undir merkjum ESB. „Eins og málum er háttað núna vekur þessi tillaga ekki áhuga okkar,“ sagði Jacek Rostowski, fjármálaráðherra Póllands. Hugmynd framkvæmdastjórnarinnar er að Seðlabanki Evrópu (SE) hafi eftirlit með bankastarfsemi í öllum löndum ESB. Aðeins evru-ríki skipa fulltrúa í bankaráði SE og þess vegna eiga Pólverjar þar ekki sæti.

Rostowski sagði að engar frekari viðræður yrðu um þetta mál. Hann mundi hins vegar leggja áherslu á að Pólverjar nytu áfram góðs af aðild að EBA (European Banking Authority) bankaeftirlitsstofnun ESB í London.

Fréttastofan FriedlNews í Austurríki segir mánudaginn 17. september að pólskir hagfræðingar séu samþykkir niðurstöðu fjármálaráðherrans um þetta efni. Hins vegar yrði ágreiningur meðal þeirra ef pólska stjórnin tæki stefnu inn í evru-samstarfið.

Framkvæmdastjórnin vill að bankasambandið hefji starfsemi árið 2013. Hugmyndin er ESB-ríki án evru geti sjálf ákveðið aðild sína að sambandinu sem lyti miðstýrðu eftirlitsvaldi. Þá yrðu reglur um innstæðutryggingar samræmdar. Fyrsta skrefið yrði að auka umboð SE.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS