Sjálfstæðishreyfingu Katalóníu á Spáni virðist vera að vaxa ásmeginn að því er fram kemur í fréttum spænska dagblaðsins El País. Artur Mas, forsætisráðherra héraðsstjórnar Katalóníu tilkynnti í gær að ályktunartillaga yrði lögð fyrir héraðsþingið um rétt Katalóníubúa til að ákveða eigin framtíð og stefnt að því að hún verði samþykkt á fimmtudag. Í texta tillögunnar segir að tilraunir til að láta Spán og Katalóníu passa saman sé ferð án fyrirheitar. Í tillögunni er gert ráð fyrir að íbúar Katalóníu fái rétt til að ákvarða sjálfir sameiginlega eigin framtíð. Í tillögunni er hins vegar ekki talað sérstaklega um sjálfstæði.
Umræður um þessa tillögu hefjast í dag. Þeir flokkar á héraðsþinginu, sem studdu fullveldisgönguna sem mikill mannfjöldi tók þátt í fyrir skömmu á Degi Katalóníu hafa 83 þingmenn af 135 á héraðsþinginu.
El País segir að Brussel hafi vaxandi áhyggjur af stöðu mála í Katalóníu.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.