Sunnudagurinn 24. janúar 2021

Bretland: „Fátæktarstyrkir“ Breta til Íslands enn til umæðu

Peningar sem eigi að fara til þróunarlanda fari til Íslands til að greiða fyrir aðild sem tveir þriðju hlutar þjóðar­innar séu á móti


30. september 2012 klukkan 09:51

Aðra helgina í röð eru „fátæktarstyrkir“ Breta til Íslands enn til umræðu í brezkum blöðum og nú bæði í Sunday Telegraph og Sunday Times (skv. timesonline). Ráðherra í ríkisstjórn Bretlands, Alan Duncan, sakar Evrópusambandið um að sóa peningum brezkra skattborgara, sem ætlaðir hafi verið til aðstoðar við þróunarlönd í verkefni, sem hafi ekkert með það að gera að draga úr fátækt. Í því sambandi nefnir Sunday Telegraph sérstaklega Ísland og 20 milljónir punda, sem Ísland hafi fengið úr sjóðum, sem Bretar greiði til. Í frétt blaðsins segir að þessir peningar séu ætlaðir til að búa Íslendinga undir aðild að Evrópusambandinu, þótt tveir þriðju Íslendinga vilji ekki aðild.

Blaðið vitnar til Steingerðar Hreiðarsdóttur, sem hafi með að gera þennan fjárstuðning á Íslandi en hún segir að sögn Sunday Telegraph:

„ Ef peningarnir eru hvort sem er fyrir hendi, sé ég ekki af hverju við ættum ekki að taka við þeim til þess að hjálpa svæði, sem er í hnignun. (If it´s available anyway, I don´t see why we shouldn´t take it to help a region that´s in decline.“

Blaðið segir að skv. opinberum tölum sé Ísland ríkara en Bretland.

Talsmaður ráðuneytis þróunarmála í Bretladi segir að nokkrir samningar af þessu tagi séu nú til skoðunar.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS