William Hague, utanríkisráðherra Breta, segir að til greina komi að kjósendur fái tækifæri til að samþykkja eða hafna áformum um að Bretar semji á ný við Evrópusambandið um tengsl Breta við ESB samhliða næstu þingkosningum í stað sjálfstæðrar þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta kemur fram í Daily Telegraph í dag. Markmiðið væri að fá stuðning kjósenda við þá fyrirætlan Íhaldsflokksins að endurheimta eitthvað af þeim ákvaðanatökum, sem framseldar hafi veið til Brussel.
Gert er ráð fyrir því, að spurningin um þjóðaratkvæðagreiðslu um tengslin við ESB verði lykilatriði á landsþingi Íhaldsflokksins, sem hefst í Birmingham á morgun, sunnudag.
Stjórnvöld í Bretlandi munu á næstu vikum leggja fram ítarlega áætlun um greiningu á því hvaða ákvarðanir Bretar vilji taka aftur í sínar hendur og að niðurstöður þeirrar greiningar verði birtar á árinu 2014 og verði eitt af aðal kosningamálum Íhaldsflokksins í þingkosningum 1915.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.