Franskir sjómenn réðust fyrir skömmu með grjótkasti að brezkum sjómönnum, sem voru að veiða hörpudisk í Ermarsund 15 mílur vestur af Le Havre og þar með utan 12 mílna á svæði, sem þeir hafa leyfi til að veiða á. Bretarnir kölluðu eftir hjáp brezku strandgæzlunnar og sjóhersins en fengu það svar að franskt herskip kæmi á staðinn. Þegar það kom neitaði skipherra þess að hafa afskipti af átökunum. Frá þessu segir í Guardian, sem segir að frönsku sjómennirnir hafi auk þess að kasta grjóti á Bretana reynt að sigla í veg fyrir þá.
Einn brezku skipstjóranna segir að bátur hans hafi allt í einu verið umkringdur af átta eða níu frönskum fiskiskipum, sem hafi hamlað för þeirra. Skipstjórinn kallaði eftir aðstoð annarra brezkra fiskibáta, sem voru á svæðinu og komu sex á staðinn. Í framhaldi af því fjölgaði frönsku bátunum í 40. Auk þess að kasta grjóti reyndu Frakkarnir að koma neti í skrúfur brezku skipanna.
Frönsku bátarnir hurfu að lokum á braut en þá komu frönsku eftirlitsmennirnir um borð í brezku bátana og telja skipstjórar þeirra að með því hafi Frakkarnir viljað tefja veiðar þeirra.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.