Veiting friðarverðlauna Nóbels til Evrópusambandsins hefur vakið upp umræður um stöðu þess og framtíð að því er fram kemur í New York Times í dag. Charles Barthel, forstjóri Robert Schuman Center for European Reasearch and Study, sem staðsett er í Lúxemborg segir við blaðið að ungt fólk hafi ekki hugmynd um hvað það þýði að standa í stríði. Hann segir að það mundi ekki skaða, ef Evrópa gæti skapað nýja, stóra framtíðarsýn. En hann bætti því við að í ljósi vandamála evrusvæðisins, sem væri í hættu að hrynja, allla vega í jaðrinum, gæti hann ekki áttað sig á hver sú framtíðarsýn ætti að vera.
New York Times telur að hugsanlega hafi veiting verðlaunanna orðið til þess að undirstrika göfug markmið með stofnun Evrópusambandsins en jafnframt vakið athygli á því, að þau markmið væru úr sér gengin og að nýrra væri þörf.
Þá kemur fram í NYTimes, að hugveitan Open Europe líki verðlaunaveitingunni við viðurkenningu, sem Hollywood-stjörnur fyrri tíma fái fyrir ævistarf.
Þá vekur blaðið athygli á þeim ummælum Malcom Rifkind, fyrrum utanríkisráðherra Breta, að það hafi verið Atlantshafsbandalagið umfram aðra, sem hafi tryggt frið í Evrópu.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.