Mitt Romney nýtur stuðnings stærsta dagblaðs í Iowa-ríki, Des Moines Register. Blaðið hefur ekki stutt frambjóðanda repúblíkana í 40 ár en telur nú að Romney sé líklegri en Barack Obama að leysa vanda þjóðarinnar á farsælan hátt. Blaðið studdi Obama árið 2008. Nú telur það að Romney sé líklegri en Obama til að ná samstöðu beggja flokka um leiðir til að vinna bug á ríkissjóðshallanum.
Í leiðara blaðsins laugardaginn 27. október segir að Obama hafi tekist að sameina menn úr báðum flokkum á þingi fyrri hluta kjörtímabils síns en síðan hafi flokkadrættir aukist í Washington og standi þeir framgangi mála fyrir þrifum.
„Stjórn hans á efnahagsmálum undanfarin fjögur ár bendir ekki til að hann leiði þjóðina inn á þá braut sem hún verður að halda næstu fjögur ár,“ segir blaðið:
„Kjósendur eiga að veita Mitt Romney tækifæri til að leiðrétta stefnuna í ríkisfjármálum og til að splundra þeirri flokkspólitísku fyrirstöðu sem hefur hlekkjað ráðamenn í Washington og þjóðina í heild – hann verður að gera sér grein fyrir að hann verður mældur á sama hátt eftir fjögur ár takist honum þetta ekki.“
Fréttaskýrendur segja að þessi afstaða blaðsins sé líkleg til að auka möguleika Romneys á að fá stuðning sex kjörmanna frá Iowa. Nýlegar kannanir sýna að Obama hefur staðið heldur betur eða vígi í ríkinu en Romney.
Register hefur ekki stutt repúblíkana síðan árið 1972 þegar það studdi Richard Nixon til endurkjörs. Almennt hafa kjörmenn frá Iowa stutt frambjóðendur demókrata undanfarin aldarfjórðung, eina undantekningin er árið 2004 þegar þeir kusu George W. Bush en ekki John Kerry.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.