Sunnudagurinn 24. janúar 2021

Schäuble hafnar alfarið að evru-ríki afskrifi skuldir Grikkja


28. október 2012 klukkan 20:54

Þýska ríkisstjórnin hefur hafnað hugmyndum um að skuldir Grikkja við einstök evru-ríki verði afskrifuð. Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, hafnaði þessari leið til að bjarga Grikkjum úr skuldasúpunni alfarið í viðtali við Deutschlandfunk sunnudaginn 28. október hins vegar mætti huga að öðru til að létta Grikkjum lífróðurinn.

Wolfgang Schäuble

„Þetta er tal sem á ekkert skylt við það sem er að gerast í evru-ríkjunum,“ sagði Schäuble þegar hann var spurður um það sem Der Spiegel hafði sagt um afskriftir á skuldum Grikkja við evru-ríki. Schäuble taldi hins vegar ekki óhugsandi að Grikkjum yrði hjálpað til að borga upp skuldir við einstaka lánveitendur.

Í viðtalinu við Schäuble var vísað til fréttar í Der Spiegel sem birt hefur verið hér á Evrópuvaktinni og sögð er reist á drögum að skýrslu þríeykisins um ráðstafanir Grikkja í ríkisfjármálum og efnahagsmálum.

„Við höfum enga skrifaða skýrslu í höndunum,“ sagði talsmaður Schäubles við DPA fréttastofuna sunnudaginn 28. október.

Þegar annað neyðarlánið var veitt samþykktu einkaaðilar sem lánað höfðu Grikkjum að afskrifa meira en 50% af nafnvirði lánanna til Grikkja og lækkaði það skuldir þeirra um 100 milljarða evra. Ríkisstjórnir evru-ríkjanna hafa til þessa hafnað að afskrifa skuldir Grikkja.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS