Gríski blaðamaðurinn Costas Vaxevanis sem sakaður var um að brjóta gegn lögum um persónuvernd með því að birta lista með nöfnum grískra eigenda bankareikninga í Sviss var sýknaður fimmtudaginn 1. nóvember og gengur nú laus.
„Dómurinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að þú sért saklaust,“ sagði Malia Volika dómari.
Vaxevanis var handtekinn á sunnudaginn og sleppt að nýju samdægurs. Sama dag birti tímarit hans. Hot Doc, lista með nöfnum rúmlega 2000 Grikkja sem áttu reikninga í HSBC í Sviss.
Listinn barst til Frakklands frá Sviss og Christine Lagarde, þáverandi fjármálaráðherra Frakklands, afhenti Grikkjum hann árið 2010. Hann hefur síðan verið kallaður „Lagarde-listinn“. Grísk yfirvöld létu hann liggja og sögðust hafa týnt honum.
„Gríska þjóðin hefur í tvö ár vitað að til er listi með nöfnum auðugs fólks, hvort sem það er rétt eða rangt, og það er ósnertanlegt,“ sagði Vaxevanis í réttarsalnum fimmtudaginn 1. nóvember. „Á sama tíma sæts aðrir [Grikkir] hörðu vegna niðurskurðar.“
Nokkrir embættismenn hafa sagt að ekki hefði verið unnt að nota listann af því að starfsmaður bankans hafði stolið honum. Aðgerðarleysi yfirvalda hefur hins vegar leitt til gagnrýni á þau fyrir að hlífa hinum ríku á sama tíma og almenningur verður að búa við fjárhagslegt harðræði.
Heimild: dw.de
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.