Evangelos Venizelos, leiðtogi PASOK, eins stjórnarflokkanna í Grikklandi er nú kominn í mikinn vanda heima fyrir vegna Lagarde-listans um eignir yfir 2000 Grikkja í bönkum í útlöndum.Venizelos var fjármálaráðherra frá því í september 2009 og þar til í júní á þessu ári og gæti staðið frammi fyrir því, að fá á sig opinbera ákæru vegna þess, að hann gerði ekkert með listann eftir að hann tók við ráðherraembætti. Lagarde sendi listann til þáverandi fjármálaráðherra George Papaconstantinou, sem sagði síðar að listinn hefði verið lagður til hliðar fyrir mistök. Nú hefur saksóknari óskað eftir því að gríska þingið rannsaki hvers vegna ekkert var gert með listann.
Yannis Stournaras, núverandi fjármálaráðherra segir að þegar hann kom í ráðuneytið í sumar hafi honum verið sagt að listinn fyndist ekki.
Innan þingflokks PASOK eru vaxandi kröfur um að Venizelos segi af sér vegna málsins og í gær sögðu tveir af 33 þingmönnum PASOK sig úr þingflokki hans af þeim sökum.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.