Mánudagurinn 25. janúar 2021

Grikkland: Hætta á greiðslufalli eftir viku-Ágreiningur meðal lánardrottna


9. nóvember 2012 klukkan 08:19

Grikkir eiga að borga 5 milljarða evra af skuldum sínum á föstudag í næstu viku og Financial Times segir að ekki sé ljóst, hvort það takist. Ástæðan er sú, að alþjóðlegir lánardrottnar Grikklands hafa ekki komið sér saman um endurskoðun á björgunarlánum til Grikkja, sem m.a. felst í að framlengja í tvö ár þann tíma, sem Grikkir fá til að kom umbótum í framkvæmd. Á mánudag verður fundur fjármálaráðherra evruríkja í Brussel og til stóð að þar yrði tekin ákvörðun um að greiða út 31,3 milljarða evra, sem er hluti af þeim lánapakka, sem Grikkir hafa samið um. En lánardrottnum hefur mistekizt að ná samkomulagi sín í milli um hver eigi að taka á sig byrðar af lægri endurgreiðslum lána en áður hafði verið gert ráð fyrir.

Einn þeirra, sem við sögu koma í þessum viðæðum segir við Financial Times að ljóst sé að frekari viðræður verði að fara fram eftir ráðherrafundinn á mánudag. Ofannefnd greiðsla á að fara til Seðlabanka Evrópu, sem hefur neitað um framlengingu og þar með lagt aukinn þrýsting á aðra lánardrottna að ná samkomulagi sín í milli. FT segir ágreining milli Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og framkvæmdastjórnar ESB. AGS er svartsýnni á stöðu Grikklands en framkvæmdastjórnin.

Í FT kemur fram að verði framkvæmdastjórnin að falllast á mat AGS þýði það tap fyrir önnur evruríki en stjórnvöld í Berlín og öðrum evruríkjum í Norður-Evrópu hafa hafnað þeirri leið af ótta við reiði kjósenda.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS