Mánudagurinn 27. júní 2022

Suður-Evrópa: Milljónir taka þátt í verkföllum á „evrópskum degi aðgerða og einingar“

130 mótmælagöngur og fundir í Frakklandi-mótmælt í 40 borgum og bæjum í Portúgal


14. nóvember 2012 klukkan 10:21
AP
Mótmæli í Lissabon 11. mars 2011 gegn niðurskurði ríkisstjórnarinnar.

Í dag, miðvikudag, taka milljónir launþega þátt í verkföllum í sunnanverðri Evrópu að sögn Reuters-fréttastofunnar til þess að mótmæla niðurskurði og skattahækkunum, sem verkalýðsfélögin segja að hafi haft í för með sér fátækt og aukið á efnahagskreppuna. Á Spáni og Portúgal er um samræmdar verkfallsaðgerðir að ræða og verkalýðsfélög í Grikklandi, á Ítalíu, í Frakklandi og Belgíu taka einnig þátt með stöðvun vinnu og mótmælaaðgerðum á „Evrópskum degi aðgerða og einingar“ eins og hann er kallaður.

Spænska lögregla handtók í morgun 32 einstaklinga, járnbrautarlestir í Portúgal höfðu stöðvast að mestu og neðanjarðarlestir alveg. Fjöldi flugferða hefur fallið niður.

Guardian segir að gert sé ráð fyrir 130 mótmælagöngum og fundum í Frakklandi. Götur Florence voru fullar af fólki í morgun, sem var að mótmæla, verkalýðssamtökin í Bretlandi hvetja Evrópusambandið til að breyta um stefnu. Blaðið segir að 600 flugferðir hafi fallið niður á Spáni í morgun. Lestarstöðvar í Madrid eru tómar. Mótmæli standa yfir í 40 bæjum og borgum í Portúgal. Mótmælagöngur hefjast í Aþenu á hádegi og stefna á Styntagma-torg. Fólk leggur niður vinnu í fjóra tíma í dag á Ítalíu.

Mótmælafundur hefur verið boðaður í London í kvöld.

Gríski vefmiðillinn ekathimerini segir að 40 verkalýðssamtök í 23 ríkjum taki þátt í aðgerðunum.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS