Samtökin Íslenskt þjóðráð – IceWise efna til málþings á veitingastaðnum Rúbín í Öskjuhlíð við hliðina á Keiluhöllinni mánudaginn 19. nóvember kl. 17.15.
Í frétt frá Íslensku Þjóðráði segir:
„Sérstakur gestur [á fundinum] verður breska þingkonan Kate Hoey, þingmaður Verkamannaflokksins í Vauxhall í Lundúnum. Kate er frá Norður-Írlandi. Hún er skeleggur málsvari þess, að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu í Bretlandi um aðild að Evrópusambandinu. Fyrirlestur Kate nefnist: Hættur Evrópuaðildar - The Dangers of Joining the EU.
Hallur Hallsson, formaður Þjóðráðs, fjallar um breytta heimsmynd sem blasir við Íslendingum, nú þegar varnarliðið er á braut og Ísland er í aðlögunarferli að Evrópusambandinu. Fyrirlestur Halls nefnist: Ísland á ný á evrópsku áhrifasvæði.
Jón Kristinn Snæhólm, varaformaður Þjóðráðs, er sagn- og stjórnmálafræðingur frá Edinborgarháskóla. Mastersritgerð hans er um sjávarútvegsstefnu ESB. Fyrirlestur Jóns Kristins nefnist: Ísland og sjávarútvegsstefna ESB. Fundarstjóri Skafti Harðarson.“
Sjá nánar: www.icewise.is
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.