Ed Miliband, leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi segir að ekki megi hafa röksemdir efasemdarmanna um Evrópusambandið að engu vegna þess að í sumum tilvikum hafi þeir rétt fyrir sér. Þetta kemur fram í samtali við hann í Sunday Telegraph í dag. Hins vegar er hann ekki tilbúinn til að skuldbinda sig til þess að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um afstöðu Breta til ESB og segir blaðið að það muni valda sumum flokksmönnum hans vonbrigðum.
Miliband segir fjárlög ESB henta aðstæðum fyrir hálfri öld en ekki 21. öldinni. Hann hvetur til þess að rætt verði um vandamál ESB með opnum hætti. Í stað þess að fjárlög ESB snúist um landbúnað eigi þau að snúast um orku, innviði og nýjungar. Hann vill breyta áherzlum ESB á aðhald, breyta því fyrirkomulag, sem hafi leitt til mikillar ásóknar innflytjenda í að komast til Bretlands og segir að afstaða sín byggist á hörðum veruleika. Hann segir Breta sofandi á leið út úr ESB af því að Cameron sé bandingi andstæðinga ESB innan Íhaldsflokksns. Hann hvetur til áframhaldandi veru Breta í ESB.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.