Matsfyrirtækið Moody´s ákvað mánudaginn 19. nóvember að lækka lánshæfismat á Frakklandi, fella það úr efsta flokki vegna þess að dregið hefði úr samkeppnishæfni þess. Litið er á lækkunina sem áfall fyrir François Hollande Frakklandsforseta og efnahagsstefnu hans sem reist er á að hækka skatta í því skyni að auka hagvöxt.
Matsfyrirtækið Standard&Poor´s lækkaði mat sitt á Frakklandi þegar í janúar á þessu ári á meðan Nicolas Sarkozy var enn forseti. Moody´s sagði að rekja mætti niðurstöðu sína til „varanlegrar minnkunar á samkeppnihæfni“ Frakklands og „gamalgróins stirðleika á vinnu-, vöru- og þjónustumörkuðum“.
Fyrr í mánuðinum spáði Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn að Frakkar kynnu að dragast aftur úr Ítölum og Spánverjum með tilliti til aðstæðna á vinnumarkaði og samkeppnishæfni. Útflutningur Frakkar dregst saman í samanburði við aðrar evru-þjóðir, einkum Þjóðverja.
Í nýjasta hefti The Economist er Frakklandi líkt við „tímasprengju í hjarta Evrópu“ vegna þess hvernig á efnahagsmálum er haldið og ekki hafi tökin batnað eftir að sósíalistar komust til valda fyrr á árinu.
Pierre Moscovici, fjármálaráðherra Frakka, sagði að lækkun Moody´s „drægi ekki grundvölld fransks efnahags í efa og [væri] hvatnig til að vinna að kerfisbreytingum“.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.