Svíar ætla að standa utan við bankasamband ESB-ríkja að því er fram kemur í Financial Times. Anders Borg, fjármálaráðherra Svía sagði í gær, að Svíar mundu standa utan þess í fyrisjáanlegri framtíð. Þetta þýðir að Bretland hefur eignast bandamann í þeim átökum, sem yfir standa innan ESB um bankasambandið. Þau snúast m.a. um það að Seðlabanki Evrópu verði ekki allsráðandi í því hvaða reglur verði settar um fjármálafyrirtæki og starfsemi þeirra, þegar hann tekur við sameiginlegu bankaeftirliti ESB-ríkja.
FT segir miklar efasemdir um að nokkurt samkomulag náist fyrir áramót eins og stefnt hefur verið að vegna ágreinings Frakka og Þjóðverja um hlutverk bankaeftirlitsins.
Í Ft kemur fram, að ummæli Borg undirstriki skoðanamun á milli Norðurlandaþjóða. Finnum sé í mun að Svíar og Danir taki þátt í bankasambandinu, þar sem tveir stærstu bankar Finnlands, Nordea og Danske Bank hafi höfuðstöðvar í Stokkhólmi og Kaupmannahöfn. Danmörk hefur ekki tekið jafn harða afstöðu og Svíþjóð en engu að síður gert athugasemdir.
Jafnaðarmenn í Svíþjóð hafa gagnrýnt afstöðu Anders Borg.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.