Innan við 10% Svía vilja taka upp evru. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem skýrt var frá miðvikudaginn 12. desember. Göran Persson, þáverandi forsætisráðherra Svía, barðist fyrir upptöku evru á árinu 2003 en henni var hafnað þá í þjóðaratkvæðagreiðslu. Persson flutti nýlega fyrirlestur hér á landi um ágæti þess að Ísland gengi í ESB og Íslendingar tækju upp evru.
Yrði efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu í Svíþjóð nú um upptöku evru mundu 82,3% Svía leggjast gegn upptökunni, 9,6% mundu styðja hana og 8% eru óákveðnir. Niðurstaðan er reist á símakönnun í nóvember þar sem 5.500 voru spurðir.
Sama stofnun hefur kannað afstöðu Svía til evrunnar síðan 1997 þegar hún kom til sögunnar. Á árinu 2011 vildu 11,2% fá evru.
Svíar hafa verið í ESB síðan 1995. Þeim er skylt að taka upp evru á grundvelli samningsskuldbindinga innan ESB, aðeins Bretar og Danir sömdu á sínum tíma um varanlega undanþágu frá evru-samstarfinu.
Síðasta könnun sem sýndi meirihlutastuðning Svía við evru er frá 2009, þá vildu 43,8 evruna en 42% voru á móti.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.