Þriðjudagurinn 26. janúar 2021

ESB: Samkomulag í morgun um fyrsta skref til Banka­sambands


13. desember 2012 klukkan 08:57

Fjármálaráðherrar ESB-ríkja náðu í morgun, eftir 14 klukkustunda fund, samkomulagi um fyrstu skref í átt til Bankasambands með ákvörðun um að Seðlabanki Evrópu fengi nýjar heimildir frá og með árinu 2014 til þess að hafa eftirlit með 150 stærstu bönkum evrusvæðisins og jafnframt fengi SE heimild til afskipta af smærri bönkum við fyrstu vísbendingu um að vandamál væri á ferð. Frá þessu segir Reuters.

Michel Barnier, sem sæti á í framkvæmdastjórn ESB sagði á blaðamannafundi í morgun að þetta væri fyrsta stóra skrefið til stofnunar Bankasambands og bætti við að Seðlabanki Evrópu mundi gegna lykilhlutverki í því.

Reuters segir að hið nýja bankaeftirlit SE ætti að vera orðið starfhæft frá og með 1. marz 2014.

Í dag og á morgun stendur fundur leiðtoga ESB-rikja og þá kemur í ljós hvort þeir veita þessum áformum nauðsynlegan pólitískan stuðning.

Þáttur í þessu samkomulagi er að sett verði upp sérstök nefnd, sem taki að sér að miðla málum komi upp ágreiningur á milli bankaeftirlits SE og einstakra þjóðríkja. Þjóðverjar féllust á að með því móti hefði verið skapað hæfilegt jafnvægi gagnvart SE.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS