Sunnudagurinn 24. janúar 2021

Slóvenar hóta að tefja aðild Króata að ESB vegna bankadeilu


15. desember 2012 klukkan 16:47

Slóvenar kunna að neita að samþykkja aðild Króatíu að Evrópusambandinu og þar með koma í veg fyrir að til hennar komi 1. júlí 2013 eins og að er stefnt. Andstaða Slóvena er reist á reiði vegna þess að Slóvenar hafna kröfum Króata eftir uppskipti banka á sínum tíma.

Karl Erjavec og Vesna Pusic

Karl Erjavec, utanríkisráðherra Slóveníu, sagði föstudaginn 14. desember: „Það er hugsanlegt að Króatar standi ekki við skuldbindingar sínar.“ Hann hafði verið spurður hvort Slóvenar mundu tefja fyrir aðild Króatíu að ESB.

Ráðherrann sagði að utanríkismálanefnd þingsins hefði sagt sér að hún mundi ekki hefja umræður um þingsályktun um aðildarsamning við Króata fyrr en bankadeilan hefði verið leyst.

Ritað var undir aðildarsamning ESB og Króatíu árið 2011. Slóvenar hafa hvað eftir annað sagt að þeir muni ekki staðfesta samninginn fyrir sitt leyti nema fundin sé lausn á 10 ára gamalli deilu vegna innistæðna Króata í slóvenska Ljubljanska Banka (LB) áður en Júgóslavía klofnaði á tíunda áratugnum.

Nágrannaþjóðirnar deila um hve mikið fé skuli endurgreiða og hvort leysa eigi málið í tvíhliða samningum þeirra á milli eða sem hluta af samningum sem unnið er að með alþjóðlegri þátttöku um skiptingu eigna fyrrverandi Júgóslavíu.

Í nóvember taldi Vesna Pusic, utanríkisráðherra Króatíu, að þjóðirnar væru að ná samkomulagi í deilunni. Þá sagði hún: „Sérfræðingar hafa samþykkt málamiðlun sem verður kynnt ríkisstjórnum þeirra. Ég tel að unnt sé að leysa málið á grundvelli þessa samkomulags.“

Karl Erjavec var ekki einn bjartsýnn um að samkomulag væri á döfinni, ef til vill yrði það ekki fyrr en undir lok 2013.

Króatía verður ekki aðili að ESB nema þjóðþing allra aðildarríkjanna 27 samþykki.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS