Þriðjudagurinn 26. janúar 2021

Norðmenn og ESB deila um makríl - Írar áhyggjufullir


19. desember 2012 klukkan 19:09
Simon Coveney

Norska sjávarútvegsráðuneytið gaf miðvikudaginn 19. desember út einhliða makrílkvóta til bráðabrigðra upp á 100 þúsund tonn vegna næsta árs. Ekki náðust samningar á milli Evrópusambandsins og Noregs um skiptingu makrílkvótans fyrr í þessum mánuði. Simon Coveney, sjávarútvegsráðherra Íra, segir að ágreiningur ESB og Norðmanna auk deilnanna við Íslendinga og Færeyinga skapi mikla óvissu fyrir írska sjómenn.

Vegna deilna ESB og Noregs verður lokað fyrir gagnkvæmar veiðar skipa í lögsögu aðilanna 1. janúar 2012. Coveney sagði í samtali við írska fjölmiðla að staðan væri mjög erfið fyrir skip sem stundi uppsjávarveiðar á makríl, síld og kolmunna. Vegna ágreinings ESB og Noregs sé ekki rætt um skiptingu afla í þessum stofnum. Ráðherrann segir þetta mál sem Írar verði að taka föstum tökum eftir áramót sem formennskuþjóð innan ESB.

Hann segir ljóst að hvorki Íslendingar né Færeyingar vilji ræða makrílveiðar á skynsamlegum forsendum á þessu ári. Náist ekki samkomulag valdi það Írum miklum vandræðum auk þess sem vegið sé að makrílstofninum.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS