Á norsku vefsíðunni ABC Nyheter er fimmtudaginn 27. desember vakin athygli á frétt á vefsíðunni asiancorrespondent.com um að í Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli hafi verið opnaður „nafnakofi“ þar sem ferðamenn geti gert tillögu um nýtt nafn á Íslandi. Velta Norðmenn fyrir sér hvort „sögueyjan“ fái í raun nýtt nafn eða aðeins sé um kynningarbrellu að ræða.
Í fréttinni segir að í kofanum sé þessi spurning lögð fyrir þá sem þangað koma: „Hvað mundir þú kalla Ísland ef þetta væri það sem þú sæir fyrst?“ Síðan sé brugðið upp myndum frá ýmsum stöðum á Íslandi. Segir að á þremur vikum hafi rúmlega 10.000 tillögur borist.
Meðal nafnanna séu þessi: Niceland, Paradiceland, New Profoundland, Nomansland, Never Neverland, Leikurland og Heiturland.
Segir á norsku vefsíðunni að ljósi nýlegra efnahagsþrenginga Íslendinga hæfi kannski nafnið Restartland best.
Í lok fréttarinnar segir:
„Það ríkir hins vegar vafi um hvort nafnakeppnin sé vegna raunverulegs vilja til að skipta um nafn á landinu á sama hátt og einkafyrirtæki geri eftir erfiðleikatíma eða hvort allt umstangið sé aðeins frumleg leið til að koma Íslandi á framfæri.“
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.