Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur tekið ákvarðanir um flutninga sendiherra milli starfsstöðva utanríkisþjónustunnar á árinu 2013. Í því sem hér birtist er aðeins litið til þeirra sem starfa innan utanríkisþjónustunnar. Flogið hefur fyrir að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, verði sendiherra Íslands í Osló. Þá yrði það í samræmi við hefð um að formenn Alþýðuflokks (Samfylkingar) verði sendiherrar að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sem nú starfar á vegum Sameinuðu þjóðanna yrði skipuð sendiherra. Breytingarnar sem hafa verið ákveðnar eru þessar:
Elín Flygenring, sendiherra, flyst frá sendiráðinu í Helsinki til starfa í ráðuneytinu 1. ágúst nk. og mun stýra Norðurlandaskrifstofu á alþjóða- og öryggissviði.
Kristín Árnadóttir, sendiherra, flyst frá sendiráðinu í Peking til starfa í sendiráðinu í Helsinki frá 1. ágúst nk.
Stefán Skjaldarson, sendiherra, flyst frá sendiráðinu í Vín til starfa í sendiráðinu í Peking frá 1. ágúst nk.
Auðunn Atlason, hefur verið skipaður sendiherra frá 1. janúar nk. og flyst til starfa í sendiráðinu í Vín 1. ágúst nk.
Stefán Lárus Stefánsson, sendiherra, flyst frá sendiráðinu í Tókýó til starfa í ráðuneytinu 1. ágúst nk.
Hannes Heiminsson, sendiherra, flyst frá ráðuneytinu til starfa í sendiráðinu í Tókýó 1. ágúst nk.
Atli Ásmundsson, aðalræðismaður í Winnipeg, verður sjötugur í maí nk. og lætur af störfum í utanríkisþjónustunni í lok þess mánaðar.
Hjálmar W. Hannesson, sendiherra, flyst frá ráðuneytinu til starfa sem aðalræðismaður í Winnipeg 1. júní nk.
Þorsteinn Ingólfsson, sendiherra, flyst frá fastanefndinni hjá NATO til starfa í ráðuneytinu 1. ágúst nk.
Anna Jóhannsdóttir, sendiherra, flyst frá ráðuneytinu til starfa sem fastafulltrúi hjá NATO 1. ágúst nk.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.