Fimmtudagurinn 22. apríl 2021

Van Rompuy: Viðleitni Breta til að endurheimta völd getur valdið miklu tjóni á ESB


28. desember 2012 klukkan 09:52
Herman Van Rompuy

Herman van Rompuy, forseti ráðherraráðs ESB segir að tilraun David Cameron, forsætisráðherra Breta til að ná aftur til sín einhverjum hluta þeirra valda, sem farið hafi til Brussel geti skaðað Evrópusambandið, orðið til þess að það splundrist og valdið miklu tjóni á hinum sameiginlega markaði. Van Rompuy hefur líka lýst miklum efasemdum um að opna aftur einhverja af sáttmálum ESB, sem Guardian segir að valdi því að hugmyndir Camerons um að endursemja Lissabon sáttmálann geti orðið flóknar í framkvæmd.

Meginröksemd Van Rompuy er sú að ef öll aðildarríki eigi að geta valið það sem henti þeim en hafnað öðru muni ESB sundrast og sameinaði markaðurinn ekki sízt. Hann sagði öll aðildarríki hafa sérstakar óskir og þarfir, sem alltaf séu teknar með í umræðum og málsmeðferð. En hann kvaðst ekki eiga von á því að neitt aðildarríkjanna vildi kippa fótunum undan þessu samstarfi.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS