Fimmtudagurinn 22. apríl 2021

Ítalía: Berlusconi líkir efnahags­stefnu Montis við blóðtöku miðalda


28. desember 2012 klukkan 10:09
Silvio Berlusconi

Silvio Berlusconi notaði hálftíma viðtal, sem honum var veitt í ítalska ríkissjónvarpinu til að ráðast á Mario Monti, fráfarandi forsætisráðherra Ítalíu og sagði að hann skildi ekkert um efnahagsmál Ítalíu og að hann hefð rekið aðhaldsstefnu, sem líka mætti vð blóðtöku miðalda þegar sjúkt fólk fékk slíka læknismeðferð. Berlusconi lofaði að hann mundi afnema óvinsælan eignaskatt, sem Monti hefur sett á. Mario Monti var áður háskólaprófessor í hagfræði.

Í viðtalinu sakaði Berlusconi þýzka banka um að hafa sett á markað mikið magn af ítölskum skuldabréfum, til þess að þvinga fram afsögn hans. Hann benti á að kannanir sýndu að Frelsisflokkur hans hefði aukið fylgi sitt eftir að hann tilkynnti um endurkomu sína í stjórnmál og mælist nú með 20% fylgi, sem er sex prósentustigum meira en áður. Þetta er sama fylgi og hugsanlegt miðjubandalag Montis fengi skv. könnunum.

Sömu kannanir sýna minnkandi fylgi vinstrabandalags Bersani, sem hefur verið með um 30% fylgi en ljóst að kjósendur óttast að það bandalag sé á leið til vinstri.

Talsmenn annarra flokka hafa mótmælt viðtalinu við Berlusconi í ríkissjónvarpinu en forráðamenn þess hafa lofað því að forystumenn annarra flokka fái sambærilegan tíma.

Bersani, leiðtogi vinstra bandalagsins hefur gefið til kynna vilja til að starfa með miðjubandalagi undir forystu Montis. Frá þessu segir Financial Times.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS