Enn einu sinni hefur verið ákveðið að fresta því að opna nýjan flugvöll við Berlín, Berlin-Brandenburg alþjóðaflugvöllinn. Enn er sagt að brunavarnir séu ónógar og þess vegna takist ekki að standa við sett tímamörk. Þetta er í þriðja sinn á þremur árum sem tilkynnt er að ekki sé unnt að opna flugvöllinn á áður áætluðum tíma.
Síðasta dagsetning hafði verið ákveðin 27. október 2013 en nú hefur verið horfið frá því að opna Berlin-Brandenburg alþjóðaflugvöllinn þann dag. Ákvörðun um frestun var tekin eftir úttekt í desember en þá kom í ljós mikill galli í brunavarnakerfi. Bild birti frétt um þetta sunnudaginn 6. janúar.
Í blaðinu er vitnað til skýrslu frá verktakafyrirtæki þar sem segir að flugvöllurinn verði ekki tekinn í notkun fyrr en árið 2014. Upphaflega átti að opna flugvöllinn í október 2011 en framkvæmdatöf kom í veg fyrir það. Þá var áætlað að opna völlinn í júní 2012 en þá var fallið frá því vegna skorts á brunavörnum.
Í athugun sem gerð var 18. desember 2012 kom í ljós að enn hafði ekki verið gengið nægilega vel frá eldvarnakerfinu.
Upphaflega var talið að kostnaður við gerð flugvallarins mundi nema 2,8 milljörðum evra, nú er hann orðinn 4,8 milljarðar evra og sér ekki enn fyrir enda á útgjöldum.
Stjórnarandstæðingar á þingi Berlínarborgar kröfðust þess mánudaginn 7. janúar að efnt yrði til aukafundar í þinginu og sögðust þeir ætla að flytja tillögu um vantraust á Klaus Wowereit borgarstjóra.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.