Föstudagurinn 15. janúar 2021

Noregur: Utanríkis­ráðherrann lýsir áhyggjum af kaldastríðstón í Rússum


11. janúar 2013 klukkan 09:43
Jóhanna Sigurðardóttir. Helle Thorning-Schmidt,Jyrki Katainen og Espen Barth Eide á blaðamannafundi í Helsinki 29. október 2012.

Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs hefur áhyggjur af kaldastríðstón í rússneskum ráðamönnum. Í tengslum við afhendingu nýs rússnesks kjarnorkukafbáts sendi varaforsætisráðherra Rússlands og fyrrum sendiherra hjá NATÓ, Dmitry Rogozin, frá sér skilaboð á Twitter, sem efnislega má þýða á þennan veg: Útlendingar og borgarapakk! Þið eruð búnir að vera!

Norska utanríkisráðherranum líkar ekki orðbragðið. Hann segist út af fyrir sig ekki hafa áhyggjur af nýjumn rússneskum kafbátum en orðbragðið valdi áhyggjum. Hann segir tón frá kalda stríðinu heyrast of oft.

Rússneski ráðherrann fylgdi orðum sínum á Twitter eftir með orðsendingu á Facebook, og sagði: „ Og ég velti því fyrir mér hvernig þeir mundu þýða orð mín!!!“

Barents Observer segir að ensk útgáfa af vefmiðlinum Russia Today hafi þýtt Twitter-skilaboðin með svipuðum hætti og BO gerði.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS