Kosningar fara fram í Neðra-Saxlandi í Þýzkalandi í dag. Fylkingarnar tvær, sem takast á eru nær hnífjafnar skv. könnun, sem Bild birti í fyrradag. Jafnaðarmenn og Græningjar annars vegar og Kristilegir demókratar og Frjálsir demókratar hins vegar hafa hvor um sig 46% fylgi skv. þessari könnun. Jafnaðarmenn hafa kallað til Gerhard Schröder, fyrrum kanslara til þess að hjálpa þeim í kosningabaráttunni. Þeir eiga undir högg að sækja. Nýtt kanslaraefni þeirra á landsvísu, Peer Steinbruck, hefur gert hver mistökin á fætur öðrum á síðustu mánuðum, Afleiðingin er sú, að í Þýzkalandi öllu hefur fylgi jafnaðarmanna minnkað úr 30% í október í 23% nú.
Þýzka tímaritið Der Spiegel segir að mistakist jafnaðarmönnum að ná völdum í Neðra Saxlandi nú kunni það að verða til þess að Steinbruck verði settur af sem kanslaraefni.
En fleira er í húfi. Frjálsir demókratar (FDP) standa líka höllum fæti. Þeir þurfa að fá 5% atkvæða til að fá fulltrúa á fylkisþingið. Nái þeir því ekki má búast við að atlaga verði gerð að leiðtoga þeirra Philipp Rösler. Skv. könnunum hefur flokkurinn nú um 3% fylgi í Neðra-Saxlandi.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.