Heimsmarkaðsverð á fiskimjöli hefur stórhækkað að sögn Financial Times og er nú komið í 2190 dollara á tonn. Ástæðan er sú, að Perú hefur skorið kvóta til ansjósuveiða niður um 70% á síðustu þremur mánuðum. Ástæðan fyrir þeim niðurskurði er minnkandi fiskgengd vegna hlýnunar sjávar.
Ein afleiðing af þessari verðhækkun á fiskimjöli er sú, að framleiðendur eldislax leita nú að öðru fóðri fyrir laxinn og reyna að gera hann að eins konar grænmetisætu. Fyrir 15 árum var um 60% af þvi fóðri, sem eldislaxinn fékk fiskimjöl en það hlutfall er komið niður í 7%.
Í frétt FT kemur fram, að fiskeldi hafi stóraukizt í heiminum m.a. vegna aukinnar neyzlu í Kína. Talsmaður fóðurblöndufyrirtækis í Danmörku segir að fæstir neytendur finni mun á laxi, sem fóðraður hefur verið með fiskimjöli og laxi, sem aðallega hefur fengið fóður úr jurtaríkinu.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.