Fimmtudagurinn 22. apríl 2021

Frakkar og Þjóðverjar: Minnst 50 ára afmælis einstæðrar sáttargjörðar


22. janúar 2013 klukkan 16:33

Frakkar og Þjóðverjar fagna í dag, þriðjudag 22. janúar, í Berlín að 50 ár eru liðin frá sögulegri sáttargjörð þjóðanna eftir síðari heimsstyrjöldina. Við hátíðarhöldin ýta Angela Merkel Þýskalandskanslari og François Hollande Frakklandsforseti til hliðar deilum líðandi stundar vegna evru-kreppunnar eða hernðaðarátkanna í Malí.

François Hollande og Angela Merkel fagna 50 ára sáttargjörð í Berlín 22. janúar 2013.

Charles de Gaulle Frakklandsforseti og Konrad Adenauer Þýskalandskanslari rituðu 22. janúar 1963 undir Elysée-sáttmálann svonefnda þar sem staðfestur var vináttuvilji „erfðafjenda“.

Efnt er til athafnar í Berlín af þessu tilefni þar sem Merkel og Hollande flytja ræður. Ríkisstjórnir Frakklands og Þýskalands efna til sameiginlegs fundar og síðan er efnt til blaðamannafundar.

Hið einstæða við athöfnina að þessu sinni er að efnt verður til tveggja stunda langs sameiginlegs fundar þýskra og franskra þingmanna í Reichstag, þýska þinghúsinu.

Franska blaðið Le Monde segir að hvergi í veröldinni eigi ráðamenn og embættismenn tveggja ríkja eins náið samstarf eins og birtist í samvinnu Þjóðverja og Frakka. Þar skipti engu þótt djúp gjá sé á milli hefða í stjórnarháttum ríkjanna.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS