Mánudagurinn 18. janúar 2021

Mariano Rajoy: Allt ósatt „fyrir utan vissa hluti“


5. febrúar 2013 klukkan 09:00
Mariano Rajoy og Angela Merkel

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, var á fundi með Angelu Merkel í Berlín í gær og sagði þá aðspurður á blaðamannafundi um peningahneykslið, sem upp er komið á Spáni:

„Ég endurtek það, sem ég sagði á laugardag; allt sem sagt hefur verið um mig og samstarfsmenn mína í flokknum er ósatt, fyrir utan vissa hluti, sem hafa verið birtir í fjölmiðlum.“

Í frétt El País um blaðamannafundinn kemur fram að Rajoy hafi ekki skýrt hvað hann telji vera ósatt og hann hafi heldur ekki svarað spurningu spænsks blaðamanns um það hverja hann eða flokkur hans ætli að lögsækja vegna ásakana um að margir áhrifamenn, þar á meðal hann sjálfur hafi fengið kaupauka úr leynisjóði til viðbótar við regluleg laun.

El Pais hafði áður sagt að Rajoy sjálfur hafi fengið greiddar sem svarar 250 þúsund evrum á 10 árum en segir nú að hann hafi fengið jafngildi 322 þúsund evra á árunum 1987-2008.

El Pais segir að Merkel hafi augljóslega verið brugðið og að hún hafi í einu tilviki reynt að komast undan því að svara spurningu blaðamanns.

Blaðið segir að fleiri vitni um að greiðslur hafi átt sér stað hafi gefið sig fram.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS