Þjóðverjar, Hollendingar og Bretar vilja lækkun á kostnaði ESB til samræmis við aðhaldsaðgerðir í aðildarríkjum
Flestir starfsmenn Evrópusambandsins eru í verkfalli í dag að því er fram kemur á euobserver. Höfuðstöðvarnar í Brussel eru nánast tómar. Þessar aðgerðir koma 48 klukkustundum áður en fundur leiðtoga ESB um fjárlög fyrir 2014-2020 hefst. Þýzkaland, Holland og Bretland vilja lækkun á launum starfsmanna ESB til samræmis við aðhaldsaðgerðir í ýmsum aðildarríkjum.
Starfsmannafélög segja að komi til niðurskurðar muni stofnanir ESB ekki geta staðið undir verkefnum sínum. Die Welt, þýzka dagblaðið bendir hins vegar á að þúsundir starfsmanna ESB séu á hærri launum en Angela Merkel, kanslari Þýzkalands. Þessu mótmælir talsmaður framkvæmdastjórnar ESB og segir að þegar tekið sé tillit til dagpeninga Merkel í Bundestag, þýzka þinginu og sérstakra jólaleyfisgreiðslna sé hún mun betur launuð en æðstu starfsmenn ESB.
Á móti kemur að sögn euobserver að starfsmenn ESB fái líka sérgreiðslur eins og 16% staðaruppbót og 1000 evrur á mánuði til þess að standa undir kostnaði við skólagöngu hvers barns.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.