Miðvikudagurinn 3. mars 2021

Kínverjar vilja aukið samstarf við Barents­svæðið- en samskiptin við Noreg í frosti


8. febrúar 2013 klukkan 09:35

Samskipti Noregs og Kína eru enn í frosti af hálfu Kínverja að því er fram kemur á Barents Observer í morgun eftir úthlutun friðarverðlauna Nóbels til kínverska andófsmannsins Liu Xiaobo 2010 og engar vísbendingar um breytingar þar á. Hins vegar lýsa Kínverjar vaxandi áhuga á samstarfi við ríki á Barentssvæðinu. Þessi áhugi kom m.a. fram í ræðu kínverska sendiherrans í Osló á Kirkenes-ráðstefnunni nú í vikunni. Sendiherrann sagði að samstarf á milli ríkjanna á Barentssvæðinu og annarra ríkja mundi aukast.

Kínverjar hafa lýst áhuga á að fá áheyrnarfulltrúa á fundi Norðurskautsráðsins og þeir endurnýjuðu þá umsókn nú í desember. Bæði Norðmenn og Svíar hafa lýst stuðningi við þá. Barents Observer segir að það hafi vakið athygli á ráðstefnunni að kínverski sendiherrann hafi lýst áhuga á samskiptum við þá þjóðfélagshópa, sem eiga rætur á norðlægum slóðum.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS