Föstudagurinn 23. apríl 2021

Mario Monti segir að innan ESB óttist menn að endurkoma Berlusconis skaði evruna


10. febrúar 2013 klukkan 21:24

Mario Monti, fráfarandi forsætisráðherra Ítalíu, sagði sunnudaginn 10. febrúar að innan Evrópusambandsins óttuðust menn að kæmist Silvio Berlusconi að nýju til valda hefði það neikvæð áhrif á evruna.

Mario Monti og Silvio Berlusconi

„Berlusconi hefur valdið mér vonbrigðum, hann fór á mis við alla mikilvæga fundi og hefur brugðist frjálslyndu byltingunni,“ sagði Monti sem varð forsætisráðherra í nóvember 2011 þegar Berlusconi var ýtt til hliðar.

„Innan ESB óttast menn endurkomu hans vegna þess að þar hafa þeir fengið meira en nóg af ábyrgðarleysi í ríkisfjármálum og getuleysi til ákvarðana sem stofnar evru-samstarfinu í hættu,“ sagði Monti í sjónvarpsstöðinni TgCom24 sem er í eigu Berlusconis.

Niðurstöður kannana sem birtar voru föstudaginn 8. febrúar sýna að Berlusconi sækir stöðugt í sig veðrið eftir því sem nær dregur kosningunum 24. og 25. febrúar.

Þetta er sjötta kosningabarátta hins 76 ára Berlusconis sem hefur þrisvar orðið forsætisráðherra Ítalíu. Að þessu sinni snúast ræður hans um vonbrigði vegna ESB auk þess sem hann ræðst á störf þess, evruna og hlut Þýskalands í samstarfi ESB-ríkjanna 27.

„Segir Monti að innan ESB óttist menn endurkomu Silvios Berlusconis? Ég get fullvissað hann um að Ítalir óttast endurkomu Montis.“ sagði Gianfranco Rotondi, fyrrverandi ráðherra í ríkisstjórn Berlusconis.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS