Mánudagurinn 18. janúar 2021

Kýpur: Verða eigendur innistæðna og skulda­bréfa látnir tapa?


11. febrúar 2013 klukkan 09:02
Merki Kýpurbanka

Financial Times segir að fram séu komnar hugmyndir innan Evrópusambandsins, sem blaðið kallar róttækar um lausn á skuldavanda Kýpur og kýpverska bankakerfisins. Þær er að finna í trúnaðarskjali, sem lagt verður fyrir fund fjámálaráðherra evruríkjanna í dag. Hugmyndin er sú, að láta innistæðueigendur í kýpverskum bönkum, sem eru ekki með tryggðar innistæður (væntanlega vegna þess hversu háar þær eru) og eigendur skuldabréfa lýðveldisins Kýpur taka á sig mikil töp. Meðal slíkra innistæðueigenda í bönkum á Kýpur eru Rússar og í mörgum tilvikum talið að um illa fengið fé sé að ræða.

Tillögurnar eru settar saman á vegum framkvæmdastjórnar ESB og eru einn af þremur kostum, sem lagðir eru fyrir ráðherrafundinn. Tekið er fram að veruleg áhætta fylgi því að fara þess leið. Með þessum tillögum er m.a. komið til móts við gagnrýni í Þýzkalandi á hugsanlega björgun Kýpur, sem að mati þýzkra gagnrýnenda jafngilti því að skattgreiðendur í öðrum evrulöndum tækju að sér að tryggja innistæður rússneskra glæpamanna í bönkum á Kýpur.

Þessi aðferð mundi leiða til þess að björgun Kýpur mundi kosta 5,5 milljarða evra í stað 16,7 milljarða og lækka heildarskuldastöðu Kýpur úr 140% af vergri landsframleiðslu í 77%.

FT segir að háttsettir embættismenn innan ESB dragi í efa að þessi leið verði farin og benda á að aldrei áður hafi komið til greina að innistæðueigendur mundu sitja uppi með tap, þar sem það gæti haft alvarleg áhrif annars staðar.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS