Miðvikudagurinn 24. febrúar 2021

Holland: Undirskriftasöfnun til að knýja fram þingumræður um ESB-aðildina


5. mars 2013 klukkan 15:26

Undirskriftasöfnun í Hollandi mun brátt skila þeim árangri að hollenska þingið verður knúið til að taka ESB-aðild landsins til umræðu.

Íhaldssamir hollenskir menntamenn hófu í lok janúar 2013 að safna undirskriftum til stuðnings tillögu um að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu í Hollandi verði meira af fullveldi þjóðarinnar framselt til ESB-stofnana í Brussel.

Þeir nálgast nú að hafa safnað þeim 40.000 þúsund undirskriftum sem duga til að knýja fram umræður um ESB-aðildina í neðri deils hollenska þingsins.

Þá hefur hollenska greiningarfyrirtækið Maurice de Hond birt niðurstöður skoðanakönnunar sem sýnir að 64% Hollendinga vilja að frekara framsal fullveldis verði lagt í dóm þjóðarinnar í atkvæðagreiðslu. Þá eru 75% þeirrar skoðunar að ESB starfi ekki á lýðræðislegan hátt.

Á síðustu 200 árum hefur aðeins einu sinni verið efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu í Hollandi, um stjórnarskrársáttmála ESB, árið 2005, og var hann felldur. Leiddi það til þess að Lissabon-sáttmálinn kom til sögunnar en hann var ekki borinn undir Hollendinga á sama hátt.

Heimild: Europaportalen

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS