Hollenzka þingið hefur nú verið knúið til þess að taka á dagskrá hvort efna eigi til þjóðaratkvæðagreiðslu um frekara framsal valds til Evrópusambandsins. Þetta liggur fyrir að sögn FT eftir að almennum borgurum tókst að safna undirskriftum 40 þúsund landsmanna á tveimur vikum með áskorun á þingið þessa efnis. Frá þessari undirskriftasöfnun hefur áður verið sagt hér í fréttum Evrópuvaktarinnar.
Þingið er ekki skuldbundið til að fylgja umræðum um málið eftir með löggjöf en FT segir að þessi framvinda undirstriki vaxandi efasemdir í Hollandi um þróun ESB, sem aftur gæti verið hindrun í vegi fyrir frekari sameiningu til að takast á við vanda evrusvæðisins. Stuðningur við ESB hefur minnkað í Hollandi eins og annars staðar vegna aðhaldsaðgerða að kröfu Brussel.
Einn af aðstandendum undirskriftarsöfnunarinnar, Ewald Engelen, segir að markmiðið með henni sé að koma í veg fyrir frekara framsal valds til Brussel án þess að lýðræðislegt umboð liggi þar að baki. Hann segir að elítan í Evrópu hræðist höfnun kjósenda.
Meðal þeirra, sem hafa stutt undirskriftasöfnunina er Gert Wilders, leiðtogi hins hægri sinnað Frelsisflokks og Emile Roemer, leiðtogi Sósíalistaflokksins.
Lög sem sett voru í Hollandi 2006 gera kleift að koma málum á dagskrá þingsins með undirskriftum.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.