Þjóðverjar komu í veg fyrir afnám vegabréfaeftirlits á landamærum Rúmeníu, Búlgaríu og Schengen-svæðisins á fundi innanríkisráðherra ESB-Schengenríkjanna í Brussel fimmtudaginn 7. mars. Hans-Peter Friedrich, innanríkisráðherra Þýskalands, segir að Rúmenar og Búlgarar fullnægi ekki skilyrðum fullrar Schengen-aðildar.
Þýski ráðherrann segir að réttarkerfi þjóðanna tveggja starfi ekki á viðunandi hátt og þess vegna sé ekki unnt að mæla með afnámi vegabréfaeftirlits gagnvart þeim. „Við verðum að líta á heildarmyndina í viðkomandi landi, hvernig brugðist er við skipulagðri glæpastarfsemi, virkni réttarkerfisins og spillingu,“ sagði Friedrich.
Ríki hafa neitunarvald við afgreiðslu tillögu um afnám vegabréfaeftirlits og vegna afstöðu Þjóðverja var aðild Rúmena og Búlgara ekki tekin til meðferðar á fundi innanríkisráðherranna. Hún verður á dagskrá ráðherrafundar í árslok.
Tsvetan Tsvetanov, innanríkisráðherra Búlgaríu, gagnrýndi afstöðu Þjóðverja og sagði að Búlgarar hefðu fullnægt öllum skilyrðum aðildar frá 2011. Hann hét því hins vegar að ræða málið áfram á opinn og gagnsæjan hátt við fulltrúa ESB í Brussel.
Martin Schulz, forseti ESB-þingsins, sagði að þýska ríkisstjórnin væri að breyta aðildarmáli Rúmena og Búlgara í pólitískt deilumál. Hann sagði að mat framkvæmdastjórnar ESB ætti að ráða og bíða ætti eftir því.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.