Ný könnun sem gerð var á vegum Samtaka iðnaðarins leiðir í ljós að 70% Íslendinga eru andvígir aðild að ESB og 30% styðja hana þegar þeir eru spurðir hvernig líklegast væri að þeir mundu greiða atkvæði ef aðild að Evrópusambandinu yrði borin undir þjóðaratkvæði núna.
Sagt er frá þessu á mbl.is laugardaginn 9. mars þar segir einnig:
„Ný könnun Capacent Gallup fyrir Samtök iðnaðarins um viðhorf til til aðildar að Evrópusambandinu og aðildarviðræðna gefur til kynna að 58,5% séu andvíg aðild en 25,1% hlynnt. Þessar tölur eru svipaðar og komu fram í sambærilegri könnun sem unnin var árið 2012. Raunar er óveruleg breyting í viðhorfum almennings til aðildar frá árinu 2010.
Þegar spurt var út í viðhorf til aðildarviðræðna kemur í ljós að 43,5% eru andvíg því að stjórnvöld dragi aðildarumsókn að Evrópusambandinu til baka en 44,6% fylgjandi. Munurinn þarna á milli er ekki tölfræðilega marktækur.“
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.