Milljónir Evrópubúa þurfa á matargjöfum að halda frá Rauða Krossinum og öðrum hjálparsamtökum að því er fram kemur í þýzka tímaritinu Der Spigel. Tveir þriðju Rauða Kross félaga innan Evrópusambandsins hafa hafið matargjafir, sem Spiegel segir benda til að efnahagskreppan í Evrópu hafi mikil áhrif til fátæktar. Aðalframkvæmdastjóri Alþjóða Rauða Krossins sagði í heimsókn á Indlandi fyrir skömmu að matargjafir hefðu ekki náð því stigi, sem þær væru á nú frá lokum heimsstyrjaldarinnar síðari.
Rauði Krossinn á Spáni sér nú um þremur milljónum manna fyrir mat. Þau samtök safna nú fé til hjálparstarfa innanlands ekki síður en í öðrum löndum. Á síðasta ári dreifði Rauði Krossinn á Spáni 33 milljónum kílóa af mat ti þurfandi og að auki fengu 21.500 manns aðstoð við að greiða húsaleigu eða fyrir vatn og rafmagn.
Í Rúmeníu búa um 3 milljónir manna í algerri fátækt eða um 14% af íbúafjölda landsins.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.