Næstum tveir þriðju Pólverja eru andvígir upptöku evru. Ákvörðun um málið á að taka eftir þingkosningar 2015. Pólverjum er skylt að taka upp evru með vísan til ESB-aðildarsamnings síns frá 2004.
Niðurstöður könnunar sem birtar voru þriðjudaginn 26. mars sýna að aðeins 32% Pólverja sem spurðir voru hvort þeir vildu að tekin yrði upp evra í landi þeirra sögðu já en 62% voru annaðhvort andvígir eða höfðu ekki myndað sér skoðun á málinu segir í frétt dagblaðsins Rzeczpospolita.
Könnunin var gerð 22. mars og voru 1.067 Pólverjar spurðir.
Ríkisstjórn Póllands hefur ekki tekið af skarið um tímasetningar varðandi evru-upptöku en Pólverjum er skylt að innleiða evru á grundvelli ESB-aðildarsamningsins. Bronislaw Komorowski, forseti Póllands, sagði í febrúar að tekin yrði ákvörðun í málinu eftir þingkosningar 2015.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.